Sumaræfingatafla handknattleiksdeildar

Hér gefur að sjá sumaræfingatöflu handknattleiksdeildar KA. Í haust var gerð sú breyting á að farið var að rukka árgjald í handboltanum en ekki sérstakt sumar eða vetrargjald. Allir þeir sem voru því skráðir í handbolta í vetur hafa þegar greitt fyrir þessar æfingar. Æfingarnar munu standa fram til föstudagsins 27.júní þegar sumarfrí hefst. Æfingar hefjast svo á nýju tímabili eftir Verzlunarmannahelgi. Æfingarnar eru þegar komnar inn í Abler. 

Nánari upplýsingar um æfingarnar veitir  yfirþjálfari deildarinnar, Svavar Sigmundsson: svavar@ka.is