Svavar Ingi yfirmaður handboltamála hjá KA

Svavar Ingi Sigmundsson hefur tekið við nýju og stærra hlutverki hjá handknattleiksdeild KA en undanfarin tvö ár hefur hann gegnt starfi yfirþjálfara deildarinnar. Hann tekur nú einnig við nýju verkefni sem yfirmaður handboltamála.

Þetta eru spennandi breytingar en Svavar eða Svabbi eins og hann er iðulega kallaður er gríðarlega metnaðarfullur og hefur heldur betur komið inn með ferska strauma inn í starf félagsins undanfarin tvö ár. Handboltinn hefur verið í mikilli uppbyggingu hjá KA undanfarin ár og höfum við mikla trú á því að Svabbi verði áfram leiðandi afl í þeirri vegferð að taka áfram skref fram á við bæði hvað varðar starf yngriflokka og meistaraflokka okkar með aukinni ábyrgð sem felst í hinu nýja starfi.

Svabbi lék á árum áður með meistaraflokk KA en hann kom inn í meistaraflokk KA árið 2017 og fékk hann strax viðurnefnið Svabbi kóngur er hann varði vítakast á lokasekúndunum í jafnri stöðu í fyrsta leik KA eftir að slitnaði uppúr Akureyri Handboltafélagi tímabilið 2017-2018. Í kjölfarið skoraði Dagur Gautason sigurmark leiksins og fagnaði liðið því sætum sigri.

Svabbi lék í fjögur ár með meistaraflokk KA uns hann hélt suður í nám árið 2021 þar sem hann lék með FH. Hjá FH var hann einnig yngriflokkaþjálfari sem og markmannsþjálfari yngriflokka og meistaraflokks kvenna.

Eins og áður segir sneri hann aftur til KA fyrir tveimur árum síðan og ríkt mikil ánægja með störf hans sem yfirþjálfari handknattleiksdeildar. Við óskum Svabba til hamingju með nýja starfið og hlökkum til að vinna áfram með honum í okkar metnaðarfulla umhverfi.