Þór og KA drógust saman í bikarnum

Handbolti

Dregið var í 32-liða úrslit Coca-Cola bikars karla í handbolta í morgun og má með sanni segja að KA liðið hafi fengið stórleik. Niðurstaðan er útileikur gegn nágrönnum okkar í Þór og verður leikið þriðjudaginn 6. október, við fáum því þrjá nágrannaslagi í vetur gott fólk!

Alls voru 19 lið í pottinum og voru aðeins sex þeirra dregin út, önnur eru sjálfkrafa komin í 16-liða úrslitin og ljóst að við þurfum að hafa fyrir því að verða þar á meðal. Bæjarslagur framundan og það verður veisla, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is