Tinna Valgerður framlengir við KA/Þór

Eva skrifstofustjóri Rafmanna ásamt Tinnu Valgerði við undirritunina
Eva skrifstofustjóri Rafmanna ásamt Tinnu Valgerði við undirritunina

KA/Þór undirbýr sig nú af kappi fyrir baráttuna í efstudeildinni og var lykilskref tekið í þeirri vegferð í gær er Tinna Valgerður Gísladóttir skrifaði undir nýjan samning við félagið.

Tinna gekk í raðir KA/Þórs í upphafi árs á lánssamning frá Gróttu og kom sterk inn er KA/Þór tryggði sér sigur í Grill66 og það án þess að tapa leik.

Tinna sem er örvhent skytta sem getur einnig leikið í horninu lék alls 10 leiki með KA/Þór og gerði í þeim alls 56 mörk. Hún kom norður eins og áður segir frá Gróttu en þar áður var hún í Þýskalandi þar sem hún bjó með Bjarna Ófeigi Valdimarssyni leikmanni KA. Tinna lék með sterku liði Fram árin 2021 til 2023.

Það er ákaflega jákvætt að Tinna sé búin að skrifa undir og klár í slaginn meðal þeirra bestu og ljóst að hún mun spila stórt hlutverk er liðið reynir að festa sig aftur í sessi meðal þeirra bestu.

Samningurinn var undirritaður í höfuðstöðvum Rafmanna en Rafmenn gerðu á sama tíma tveggja ára styrktarsamning við KA/Þór og verða á búningi liðsins næstu tvö árin. Við erum afar spennt fyrir samstarfinu við Rafmenn og gaman að fá jafn öflugt fyrirtæki við að styðja við okkar öfluga kvennastarf.