Tinna Valgerður í raðir KA/Þórs

Handbolti
Tinna Valgerður í raðir KA/Þórs
Velkomin norður Tinna!

Tinna Valgerður Gísladóttir skrifaði í dag undir lánssamning við KA/Þór og leikur því með liðinu út þetta tímabil. Tinna er strax orðin lögleg með KA/Þór og getur því leikið með liðinu í leiknum gegn Fram-2 í Lambhagahöllinni kl. 18:15 í kvöld.

Tinna sem er örvhent skytta en getur einnig leikið í hægra horni kemur norður frá Gróttu þar sem hún hefur leikið það sem af er vetri en þar áður var hún í Þýskalandi þar sem hún bjó með Bjarna Ófeigi Valdimarssyni leikmanni KA. Tinna lék með sterku liði Fram árin 2021 til 2023.

KA/Þór er taplaust á toppi Grill66 deildarinnar fyrir lokakafla deildarinnar og ljóst að koma Tinnu mun styrkja liðið enn frekar í baráttunni um sæti í deild þeirra bestu. Það er afar spennandi að fá hana norður og bjóðum við hana hjartanlega velkomna.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is