Agnes, Telma, Lydía og Aþena skrifa undir

Handbolti

Agnes Vala Tryggvadóttir, Telma Ósk Þórhallsdóttir, Lydía Gunnþórsdóttir og Aþena Sif Einvarðsdóttir skrifuðu allar undir samning við KA/Þór á dögunum en allar eru þær þrælefnilegar og að koma uppúr yngriflokkastarfi félagsins.

Allar komu þær við sögu hjá meistaraflokki á síðustu leiktíð og verða án nokkurs vafa í stærra hlutverki í vetur. Agnes Vala er fædd árið 2004, Aþena og Telma eru fæddar 2005 og Lydía er fædd árið 2006.

Fyrsti heimaleikur KA/Þórs er á sunnudaginn þegar stelpurnar taka á móti Haukum klukkan 16:00. Lydía gerði tvö mörk í opnunarleik tímabilsins í Vestmannaeyjum og þá átti Aþena einnig flotta innkomu og átti meðal annars góða stoðsendingu. Við óskum stelpunum til hamingju með samningana og verður gaman að fylgjast með framgöngu þeirra í vetur og í komandi framtíð.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is