Einar Rafn framlengir um tvö ár!

Handbolti

Einar Rafn Eiðsson skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2024-2025. Eru þetta frábærar fréttir enda Einar einn allra besti leikmaður Olísdeildarinnar og algjör lykilmaður í okkar liði.

Einar gekk í raðir KA fyrir tímabilið 2021-2022 og er því að klára sitt annað tímabil með félaginu í vetur. Hann hefur heldur betur smollið frábærlega inn í KA en auk þess að fara hamförum innan vallar hefur hann tekið að sér þjálfun yngriflokka og verið gríðarlega vinnusamur í starfinu í kringum liðið okkar.

Fjórar umferðir eru eftir af Olísdeildinni í ár og er Einar Rafn markahæstur í deildinni og stefnir klárlega á að verða markakóngur en KA hefur átt markakóng deildarinnar undanfarin tvö ár en Óðinn Þór Ríkharðsson var markakóngur í fyrra og þar áður var Árni Bragi Eyjólfsson markakóngur. Sjálfur varð Einar markakóngur efstu deildar tímabilið 2015-2016 og var auk þess valinn sóknarmaður ársins tímabilið 2017-2018.

Þá vakti hann mikla athygli þegar hann gerði 17 mörk í leik KA og Gróttu í vetur en þar jafnaði Einar félagsmet KA en Arnór Atlason gerði einnig 17 mörk í leik gegn Þór tímabilið 2003-2004.

Það eru frábærar fréttir að við höldum Einari áfram innan okkar raða og stórt skref stigið í áframhaldandi uppbyggingu okkar liðs að halda jafn öflugum og reynslumiklum leikmanni í okkar röðum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is