Slæm byrjun felldi KA/Þór gegn Val

Handbolti
Slæm byrjun felldi KA/Þór gegn Val
Erfiður fyrsti leikur (mynd: Þórir Tryggva)

KA/Þór lék fyrsta leik sinn í deild þeirra bestu þegar liðið tók á móti Íslandsmeistarakandídötunum í Val. Stelpurnar hafa þurft að bíða lengi eftir leiknum en liðið tryggði sig upp fyrir um hálfu ári síðan og því eðlilega mikil eftirvænting eftir leik dagsins.

Hvort að okkar lið hafi verið yfirspennt eða að gæði Valsliðsins séu það mikil skal ég ekki segja en leikurinn fór herfilega af stað fyrir okkar lið. Gestirnir komust snemma í 0-3 og eftir um 12 mínútna leik var staðan orðin 1-9.

Valsliðið hreinlega lék sér að því að opna vörn KA/Þórs og á sama tíma gekk lítið í sókninni og þegar opnanirnar komu þá var Íris Björk Símonardóttir erfið í marki gestanna.

En það býr mikill karakter í okkar liði og stelpurnar fundu taktinn betur og betur. Munurinn hélst í 6-8 mörkum út hálfleikinn og voru mikil batamerki á okkar liði. Hálfleikstölur voru 11-18 og í raun eina spurningin hve stór sigur Valsstúlkna yrði.

Tímalína fyrri hálfleiks

Síðari hálfleikur var svo í raun bara formsatriði, KA/Þór minnkaði muninn mest niður í 5 mörk og fékk tækifæri á að minnka enn frekar en það gekk ekki og gestirnir sigldu á endanum öruggum 19-25 sigri í hús.

Tímalína seinni hálfleiks

Mörk KA/Þórs: Martha Hermannsdóttir 7 (3 úr vítum), Katrín Vilhjálmsdóttir 4, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 4, Ásdís Guðmundsdóttir 2, Ólöf Marín Hlynsdóttir 1 og Una Kara Vídalín Jónsdóttir 1 mark.
Olgica Andrijasevic stóð í markinu og varði 15 skot.

Mörk Vals: Íris Ásta Pétursdóttir 5, Lovísa Thompson 4, Sandra Erlingsdóttir 4, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Díana Dögg Magnúsdóttir 2, Morgan Marie Þorkelsdóttir 2, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 1, Gerður Arinbjarnar 1, Hildur Björnsdóttir 1, Kiyo Inage 1 og Ragnhildur Edda Þórðardóttir 1 mark.
Íris Björk Símonardóttir varði 17 skot og Emelía Dögg Sigmarsdóttir 1 skot.

Það er ljóst að leikurinn í dag mun reynast okkar liði mikilvægur. Liðið lenti vægast sagt á vegg í upphafi leiks en þegar á leið sýndu stelpurnar hinsvegar að þær eiga fullt erindi í deild þeirra bestu. Kannski eðlilega var spennustigið ansi hátt og þá getur farið illa eins og gerðist í dag. Nú er það hinsvegar frá og verður spennandi að sjá stelpurnar í næsta leik en það er útileikur gegn sterku liði Hauka á laugardaginn næsta.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is