Strákarnir í 3.flokki KA gerðu sér lítið fyrir í dag og sigruðu úrslitaleik um íslandsmeistaratitilinn. Fjölnismenn komust yfir í fyrrihálfleik og í hálfleik var staðan 1 – 0 fyrir Fjölnismönnum. Í seinnihálfleik jafnaði Jóhann Axel Ingólfsson með skallamarki.
Þegar venjulegur leiktími var á enda kominn var staðan jöfn, 1 – 1 og þurfti því leikurinn að fara í frammleingingu. Var framleingt í tvisvarsinnum 10 mínótur.
Þegar fyrrihluti framleingingarinnar var staðan óbreytt en á annari mínótu seinnihelmingsins skoraði Hjörtur Þórisson sigurmarkið fyrir KA menn.
Heimasíðan óskar strákonum innilega til hamingju með titilinn !
Móttaka verður í kvöld í KA-Heimilinu og eru allir KA-menn hvattir til þess að koma og taka á móti strákunum. Móttakan verður kl 20:00 !