Ýmir og Jóhann í baráttu við Blika
KA náði frábærum árangri á Goðamóti Þórs í fimmta flokki karla, sem lauk í
dag. KA varð Goðamótsmeistari í bæði A- og B-liðum, í þriðja sæti í C-liðum
og D-liðum og fimmta sæti og þar með B-úrslitameistarar í E-liðum.
Í úrslitaleik B-liða sigraði KA KS frá Siglufirði með einu marki gegn engu.
Í úrslitaleik A-liða sigraði KA Fjarðabyggð með þremur mörkum gegn einu.
Þessi árangur undirstrikar hversu öflugur fimmti flokkurinn er hjá KA í ár,
eins og í fyrra, en rétt er að rifja upp að sl. haust lék fimmti flokkur
karla hjá KA til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.
Strákunum og þjálfurum þeirra, Ágústi Haraldssyni og Eyþóri Bjarnasyni er
óskað til hamingju með glæsilegan árangur á Goðamótinu!