Undanfarna tvo mánuði hefur farið á síðunni fram lítil skoðanakönnun. Þar spurðum við hvort að lesendum síðunnar fyndist að íbúakosning ætti að fara fram um staðsetningu Akureyrar vallar. Um 500 manns tóku þátt og vildu 79% þáttakenda kjósa um þetta mál, en 21% vildu það ekki.
Það er alltaf gaman að velta þessum málum fyrir sér enda mikið hitamál hér í bæ. Þó hefur ýmislegt breyst á meðan þessi skoðanakönnun hefur staðið yfir, t.d. er búið að semja við íþróttafélögin um uppbyggingu á svæðum, Þór búnir að hafna sínum tillögum og fleyra. Verður það að teljast leti síðustjóra að könnunin hafi staðið svo lengi yfir.