Aðalfundur Knattspyrnufélags Akureyrar verður haldinn í KA-Heimilinu þriðjudaginn 28. apríl næstkomandi klukkan 17:30.
Hefðbundin aðalfundarstörf verða á dagskrá og hvetjum við alla félagsmenn til að mæta og taka þátt í starfi félagsins.
Á fundinum verður farið yfir stöðu mála í uppbyggingarmálum félagsins og að honum loknum mun gestum bjóðast möguleiki að fara í smá skoðunarferð um svæðið.
Dagskrá aðalfundar
1. Formaður setur fundinn
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar
4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
5. Lagabreytingar
6. Ákvörðun árgjalda
7. Kosning stjórnar, varastjórnar og endurskoðenda - skoðunarmanna.
8. Kosning nefnda.
9. Önnur mál.