Aðalfundur K.A. var haldinn í gærkvöld

Stefán Gunnlaugsson formaður og Árni Jóhannsson fráfarandi formaður á fundinum í gær
Stefán Gunnlaugsson formaður og Árni Jóhannsson fráfarandi formaður á fundinum í gær
Aðalfundur Knattspyrnufélags Akureyrar var haldinn í gærkvöld. Á bilinu 60-70 félagar mættu á fundinn og þykir það góð mæting miðað við fyrri ár. Hægt er að lesa nánar um fundinn með því að smella á "Lesa meira". Árni Jóhannsson fráfarandi formaður félagsins steig fyrstur í pontu og fór yfir árið og sinn stjórnarferil. Síðastliðið ár var ekki feitt í fótboltanum, en Árni vék að því að búið væri að ráða nýjan þjálfara meistaraflokks og miklar vonir væru bundnar við hann og bættan árangur n.k. sumar.

Árni kom einnig inná samstarf KA og Þórs í handboltanum undir merkjum Akureyrar. Hann taldi það ekki hafa tekist sem skyldi, bæði árangurslega en ekki síst fjárhagslega. Árni sagði að það þyrfti að stokka handboltamálin upp ef byrjað væri með meistaraflokk aftur hjá KA. Þá væri það einnig brýn nauðsyn að reka hann á lágmarks kostnaði.

Árni sló næst á jákvæðari nótur, hann nefndi afmælisviku KA sem haldin var í janúar sem tókst einstaklega vel, spennandi uppbyggingu á KA-Svæðinu og að félagið stefnir nú að því að fá æfingarsvæði í Naustahverfi og við Verkmenntaskólann.

Undir lok ræðunnar tilkynnti Árni svo að hann gæfi ekki kost á sér aftur til formennsku. Mikil eftirsjá er í Árna, sem hefur staðið sig vel fyrir félagið s.l. 3 ár.

Bjarni Áskelsson fráfarandi gjaldkeri útskýrði reikninga félagsins, en þar kom fram að félagið skilaði hagnaði árið 2007.

Því næst voru þau mál sem á dagskrá voru afgreidd fljótt af hinum skelegga fundarstjóra Gunnari Níelssyni.  Þar var m.a. kosin ný stjórn yfir Jakobssjóðnum sem er afrekssjóður KA manna. Stefán Gunnlaugsson var svo kosinn formaður félagsins, en hann var einn í framboði. Stefán snýr aftur sem formaður eftir 40 ár, en hann var formaður árið 1970. Stefán þekkja allir KA - menn en hann hefur verið viðloðandi KA í fjöldamörg ár.

Undir liðnum önnur mál tjáðu nokkrir skeleggir KA - menn sig um hin ýmsu málefni, meðal annars svaraði formaður Akureyrar Handboltafélags Hannes Karlsson fyrir þá gagnrýni sem Akureyri Handboltafélag hefur sætt, Sigurður Arnar talaði stuttlega um blakdeildina og Gunnar Jónsson fráfarandi framkvæmdastjóri kvaddi og talaði stuttlega um þær framkvæmdir sem staðið hafa yfir í KA - heimilinu undanfarið.

Eftir að fundi var slitið var fundargestum boðið uppá veitingar í boði aðalstjórnar.

Það er ljóst að bjartir tímar eru framundan hjá KA, en viðtal við nýjan formann Stefán Gunnlaugsson birtist hér á síðunni á næstu dögum.

-Sigurður Þorri Gunnarsson