Æfingaleikur gegn Dalvík/Reyni

Við eigum marga efnilega stráka í meistaraflokknum
Við eigum marga efnilega stráka í meistaraflokknum

Laugardaginn 26. apríl fer fram KA-Dalvík/Reyni á KA-velli kl. 12:00.

Um er að ræða æfingaleik en bæði lið hafa lokið keppni í Lengjubikarnum og eru að undirbúa sig fyrir átök sumarsins. Dalvík/Reynir leika í 2. deild í sumar líkt og í fyrra þegar liðið endaði í 7. sæti. Dalvíkingar höfðu betur gegn KF og Tindastól í Lengjubikarnum en biðu lægri hlut fyrir Ægi, Magna og Völsungi.