Í dag var kunngjört hver hafði verið kjörinn íþróttamaður KA fyrir árið 2015. Það var knattspyrnumaðurinn Ævar Ingi Jóhannesson sem hreppti hnossið en einnig voru þau Birta Fönn Sveinsdóttir og Ævarr Freyr Birgisson tilnefnd.
Ævar Ingi fékk fullt hús stiga í kosningunni en hér fyrir neðan má lesa um helstu afrek hans árið 2015:
Ævar Ingi er fæddur í janúar 1995 og verður því 21 árs núna eftir nokkrar vikur. Sumarið 2015 var Ævar algjör lykilmaður í lið KA í fyrstu deildinni og skoraði hann 12 mörk í deild og bikar fyrir liðið í sumar. Í lok sumars var Ævar valinn í lið fyrstu deildarinnar af þjálfurum og fyrirliðum sem segir margt um styrk hans í sumar. Ævar Ingi var einnig í algjöru lykilhlutverki hjá U-21 árs landsliði Íslands en nú þegar undankeppni EM 2017 er hálfnuð er Íslenska landsliðið á toppi síns riðils á undan þjóðum eins og Frökkum og Skotum. Ævar var meðal annars valinn maður leiksins í fræknum sigri Íslands á Frökkum 3-2 en með Frökkum leika margir leikmenn úr stærstu liðum heims.
Ævar hefur alltaf gefið sig 100% í þau verkefni sem honum eru falinn og hefur hann gríðarlega mikinn metnað til að ná langt í fótboltanum auk þess sem framkoma hans í garð íþróttarinnar og félaganna hefur alltaf verið til fyrirmyndar.