Afmælisveisla á sunnudaginn!

KA varð 83. ára þann 8. janúar s.l. Í tilefni af því verður haldin afmælisveisla í KA heimilinu sunnudaginn 16. janúar kl 14:00. Þar verður kjöri á íþróttamanni KA lýst og boðið uppá glæsilegt kaffihlaðborð.


Dagskráin er sem hér segir:

  • Formaður býður fólk velkomið.
  • Íþróttaannáll 2010R
  • Ræðumaður dagsins: Viðar Sigurjónsson deildarstjóri hjá ÍSÍ og þjálfari meistarflokks kvenna KA/ÞÓR
  • Kjöri íþróttamanns KA lýst
  • Stórglæsilegt kaffihlaðborð að hætti KA -manna

Mætum í KA - Heimilið á sunnudaginn og gerum okkur glaðan dag!