Nú er lokið afmælisviku Knattspyrnufélags Akureyrar sem var hreint út sagt "geggjuð"! Útgáfa á blaði í tilefni afmælisins markaði upphaf afmælisvikunnar, en það var Óskar Þór Halldórsson sem ritstýrði blaðinu. Óskar á mikið hrós skilið, því blaðið er glæsilegt í alla staði.
Á þriðjudaginum 8. janúar, sjálfan afmælisdaginn, var haldið glæsilegt hóf í KA – heimilinu. Var öllum KA - mönnum boðið upp á veglegar veitingar sem foreldrar og aðstandendur iðkenda í 4. flokki í handbolta undirbjuggu. Fjöldi fólks heimsótti KA - heimilið þennan dag. Í hófinu var m.a. kjöri á íþróttmanni KA lýst. Davíð Búi, blakmaðurinn mikli var kjörinn íþróttamaður KA. Veislan endaði svo með glæsilegri flugeldasýningu í boði Bónus.
Föstudaginn 11. janúar var mikið um dýrðir. Páll Óskar kom og keyrði upp stemmingu í KA -heimilinu en KA er greinilega í uppáhaldi hjá honum. Öllum var boðið á fjölskylduskemmtun síðdegis og voru á bilinu 500 - 600 manns sem mættu í KA – heimilið. Um kvöldið var unglinga ball fyrir 16 ára og eldri og þar komu á bilinu 500 - 600 manns til að skemmta sér. Fóru báðar skemmtanirnar mjög vel fram.
Á laugardagskvöldið var aðal hátíðin en þá var boðið til glæsilegrar skemmtunar í KA-Heimilinu. Þar komu saman margir KA – menn og sumir þeirra höfðu ekki komið í KA - heimilið í mörg ár. Friðfinnur Hermannson fór á kostum sem veislustjóri og Raggi Sót sem var ræðumaður kvöldsins kom öllum til að hlægja þegar hann rifjaði upp gamla tíma. Óskar Pétursson stórtenor kom og söng fyrir gesti á sinn einstaka hátt og fór með gamanmál. Óskar ætti kannski að snúa sér að uppistandi ?
KA á sína eigin hljómsveit, KA – bandið, sem kom saman í annað skipti þetta kvöld og hljómuðu þeir vel, þeir eiga að gera þetta oftar ! Páll Óskar keyrði svo stemminguna upp í þriðja sinn undir lok kvöldsins.
Margir KA menn voru heiðraðir og verður vikið betur að þeim sem hlutu viðurkenningar síðar.
Afmælisnefndin á hrós skilið fyrir þessa viku, en hana skipa: Tryggvi Gunnarsson, Magnús Sigurólason, Eygló Birgisdóttir, Erlingur Kristjánsson, Jón Óðinn Óðinsson, Hallur Stefánsson og Gunnar Jónsson. Þetta fólk eru snillingar og hafa þau lagt á sig ómælda vinnu við undirbúning og framkvæmd afmælisins
Í þessari viku sást best hversu margir eru tilbúnir til að vinna sjálboðastarf fyrir KA og andinn hefur sannarlega ekki dofnað í húsinu.
Ég er stoltur KA - maður eftir þessa viku.
Til hamingju allir KA – menn
-SÞG