Deildirnar okkar 4 störfuðu af fullum krafti á síðasta ári og var árangur góður bæði á sviði íþrótta og í rekstrinum og bera að þakka stjórnarfólki allra deilda og unglingaráða fyrir vel unnin störf. Aðalstjórn hefur svo yfirumsjóm með málefnum félagsins ásamt Gunnari Jónssyni framkvæmdastjóra en hann er okkur ómetanlegur og þekkir alla þætti félagsins betur en nokkur annar.
Knattspyrnudeild:
Starf knattspyrnudeildar var öflugt sem endranær árið 2009. Meistarflokkur laut stjórnar Dean Martin og Steingríms Eiðssonar og var árangur
liðins ágætur. Liðið leiddi deildina á tímabili og er ekki gott að segja hvernig hefið farið ef lykilmenn liðsins hefðu ekki
meiðst.
Starf unglingaráðs er
gríðalega gott og hafa sennilega aldrei verið jafn margir iðkendur og s.l. sumar þegar 430 börn og unglingar æfðu hjá KA. S.l. haust gekk
unglingráð frá samningi við enska stórliðið Arsenal um knattspyrnuskóla á félagssvæði okkar næsta sumar. Löngu
uppselt á námskeiðið og komust færri að en vildu. Þetta framtak er frábært og ber að þakka þeim sem þar höfðu
forgöngu.
Handknattleiksdeild:
Starf Handknattleiksdeildar er í blóma en í meistaraflokkur er aðeins kvennalið því karlahandboltinn er undir merkjum Akureyri Handboltafélags.
Meistaraflokkur kvenna var í 2.deild á sl.vetri og hlutu þar silfurverðlaun. Nú í vetur er liðið í efstu deild og er þar í
neðri hlutanum eins og við var að búast því eðlilegt uppbyggingarstarf er í gangi undir stjórn Hlyns Jóhannssonar og Stefáns
Guðnasonar.
Yngri flokkarnir eru nú aftur á uppleið eftir nokkur mögur ár og iðkendafjöldinn um 240 börn og unglingar.Mikil fjölgun iðkenda var á síðsta vetri sem eflaust
má rekja til góðs gengis landsliðsins og þess að margir mjög hæfir þjálfarar starfa hjá deildinni.
Mjög margir leikir fara fram hjá þessum krökkum og Í nóvemer sl.var stórmót hér í okkar umsjá fyrir 6.fl.karla og 6.fl.kvenna þar sem komu um 600 keppendur auk fylgdarliðs.
Þess ber að geta að mikið og gott samstarf er við Þór bæði í mótahaldi og umsjón kvennaflokka handboltans og ber meistaraflokkur nafn beggja liða KA/Þór.
Júdódeild:
Júdódeildin heldur sínu
striki undir styrkri stjórn Jóns Óðins eins og áður. Hann sér um allan rekstur og þjálfun að mestu leiti sjálfur.
Árangur júdófólks er að venju góður og fjöldi íslandsmeistara kominn í hús. Nú ber nýrra við að vegur kvenfólksins er að aukast hjá deildinni og helsta skrautfjöður deildarinnar er einmitt Helga Hansdóttir sem stóð sig frábærlega á árinu 2009. Iðkendur deildarinnar eru nú rúmlega 100 manns.
Blakdeild:
Blakdeild KA telfdi fram sterku karlaliði tímaibilið 2008-2009 undir stjórn Marek Bernat þjálfara. Liðið komst í úrslit bikarkeppninnar
og spilaði vel í deildarkeppninni og hlaut silfurverðlaun þar sem meiðsli og veikindi lykilmanna settu strik í reikninginn. Það sem af er þessu
keppnistímabili hefur liðið aðeins tapað einum leik og er efst í MIKASA deildinni þegar mótið er hálfnað.
Kvennalið KA spilaði í 2.
deild tímibilið 2008-2009. Í haust hóf kvennaliðið síðan aftur þátttöku í 1. deild kvenna eftir tveggja ára veru í
annarri deild og er sem stendur í 3. sæti deildarkeppninnar.
Árangur yngri flokka Blakdeildarinnar var upp og ofan á Íslandsmótum þetta árið. Deildin tók að sér að halda seinna Íslandsmót yngriflokka Blaksambandsins vorið 2009 og var mótið eitt stærsta yngriflokkamót sem haldið hefur verið hér á landi hingað til, en alls tóku 73 lið þátt í mótinu. Talið er að um 500 manns hafi komið að mótinu með einum eða öðrum hætti.
Nánari annál frá blakdeild má finna hér.
Lokaorð:
Alltaf eru deildir félagsins
að reyna að auka gæði starfsins og bæta þá aðstöðu sem iðkendum okkar er boðið uppá. Á síðasta
ári sameinuðust þær við að koma upp lyftingaaðstöðu hér í KA heimilinu. Flest okkar fólk stundar nú sína
kraftþjálfun í þessari aðstöðu án endurgjalds en deildirnar þurfa ekki að kaupa þessa þjónustu úti í
bæ.
Fyrir um ári síðan hófu framhaldsskólarnir að reka afreksbraut í íþróttum til reynslu er þessi starfsemi nú í fullum gangi. Margir okkar krakka úr öllum deildum eru nú í þessari braut og eru því á aukaæfingum á skólatíma í stað skólaleikfimi. Vonandi skilar þetta okkur enn fleira afreksfólki í framtíðinni.
Í heildina var íþróttaárið 2009 gott KA ár og vonandi verður 2010 ekki síðra. Áfram KA