13.01.2009
Tryggvi Gunnars fór yfir árið 2008 hjá Knattspyrnufélagi Akureyrar í afmælishófinu sem haldið var þann 11. janúar s.l. Við
birtum hann nú í heild sinni hér á síðunni. Annállinn er eftir Tryggva Gunnars með aðstoð félaga í aðalstjórn.
Árið 2008 var merkilegt ár í sögu KA. Félagið varð 80 ára á árinu og var af því tilefni haldin eftirminnileg
afmælishátíð. Afmæliskaffi var á sjálfan afmælisdaginn 8.janúar og síðan var barnaball haldið á föstudegi og
einnig unglingaball um kvöldið. Daginn eftir á laugardeginum var hátíðarkvöldverður og dansleikur í
íþróttahúsinu. Páll Óskar sá um fjörið á öllum þessum viðburðum og verður þetta lengi í
minnum haft þar sem hittust gamlir félagar og fjöldi fólks var heiðraður fyrir vel unnin störg hjá félaginu.
Deildir félagsins hafa unnið af krafti á árinu og íþróttalegur árangur verið ágætur.
Knattspyrnudeild er stærsta deild félagsins og starfið þar blómlegt eins og áður.
Dean Martin var ráðinn þjálfari meistaraflokks KA í knattspyrnu haustið 2007 og síðastliðið keppnistímabil var því hans
fyrsta með liðið. Það var strax ljóst að Dínó ætlaði ekki að taka KA-strákana neinum vettlingatökum og svitamyndunin var meiri
en áður hefur sést á æfingum. En þetta skilaði líka fínum árangri og strákarnir voru í frábæru formi.
Þegar upp var staðið skilaði allt púlið KA-liðinu í fjórða sæti 1.deildar og að sjálfsögðu er stefnan sett ofar
næsta sumar.
Metfjöldi ungra knattspyrnukrakka æfði á KA-svæðinu sl. sumar og sérlega ánægjulegt var að sjá mikla fjölgun í
kvennaflokkunum. Það unnust margir góðir sigrar en margir leikir töpuðust líka. Gangur mála á knattspyrnuvellinum er í takt við
lífsklukkuna, stundum eru hæðir og stundum lægðir.
Ein af skemmtilegum nýjungum í knattspyrnunni á KA-svæðinu var Knattspyrnuskóli Grétars Rafns Steinssonar í júníbyrjun þar sem
þjálfarar frá Bolton Wanderes kenndu ungum knattspyrnukrökkum í KA og frá fleiri félögum ýmsar knattspyrnukúnstir. Vonandi verður
unnt að hafa slíkan skóla aftur hér á KA-svæðinu.
Og ekki má gleyma árlegu N1-móti KA í 5. flokki karla, sem tókst mjög vel, eins og endranær. Við skipulagningu og framkvæmd mótsins
leggur stór og öflugur hópur KA-manna saman krafta sína og útkoman er félaginu til sóma.
Handknattleiksdeildin hefur verið án meistaraflokks undanfarin ár og því ekki verið eins mikið í eldlínunni og á árum
áður þegar liðið var ávallt í fremstu röð. Á árinu 2008 ber hæst árangur 4.fl.karla sem varð Deildarmeistari
síðastliðið vor og í öðru sætt á Íslandsmótinu.
Þar sem fyrirmyndirnar úr meistaraflokki vantar hafði orðið fækkun hjá yngri iðkendum undanfarin ár en nú í haust fylltust
skyndilega allar æfingar af efnilegum handbolta strákum og stelpum og má það að miklu þakka silfurmedalíu Íslenska landsliðsins í
Peking í sumar. Fyrirmyndirnar eru greinilega mikilvægar.
Annað sem gleður KA hjartað er að meistaraflokkur og unglingaflokkur kvenna fóru aftur að leika í gulu og bláu búiningum KA og ætlunin er að
gera stelpunum hærra undir höfði en áður. Meistarflokkurinn var taplaus á síðasta ári og keppir bráðlega í 8 liða
úrslitum bikarkeppninnar.
Einnig er gleðilegt að gamlir leikmenn og þjálfarar eins og Jóhannes Bjarnason, Sævar Árnason, Einvarður Jóhannsson og Jóhann G.
Jóhannsson hafa aftur komið til starfa við að byggja upp ungviði félagsins. Það er því bjart yfir handboltadeildinni í upphafi
nýs árs.
Blakdeild KA telfdi fram sterku karlalið tímibilið 2007-2008 og liðið virtist um tíma ósigrandi í byrjun árs Þeir unnu 31 hrinu í
röð án taps sem er líklega met hjá félaginu. Liðið endaði í öðru sæti í deilarkeppninni sem er besti árangur
liðsins í áraraðir. KA menn spiluðu til úrslita um Bikarmeistaratitilinn en töpuðu í gríðarlegum baráttuleik. Sem
stendur er karlaliðið í 2.sæti deildarinnar.
Ákveðið var að senda kvennaliðið ekki í 1.deild spenna bogann ekki of hátt en huga þessi í stað að uppbyggingu yngri leikmanna en
meistaraflokkurinn samanstendur að mestu af leikmönnum úr 2 og 3. flokki félagsins.
Það fór þó ekki svo að KA inni ekki veglega titila á árinu 2008. Íslandsmeistaratitilar unnust í öðrum flokki karla, í
þriðja flokki kvenna og í 5. flokki karla sem er besti árangur sem Blakeild KA hefur náð í yngriflokkum fyrr og síðar og gefur til kynna
bjarta framtíð í blakinu hér á Akureyri.
Blakdeild KA tók í september að sér framkvæmd NEVZA sem er arftaki Norðurlandamóta undir 19 ára. Mótið var eitt stærsta
verkefni sem Blakdeild KA hefur tekið að sér en keppendur á mótinu voru um 120 talsins í 10 liðum frá 6 þjóðlöndum í karla-
og kvennaflokki.
Starf júdódeildar var með svipuðu sniði og undanfarin ár. Í mars var keppt á Íslandsmóti barna og unglinga og urðu Astrid Maria
Stefánsdóttir, Gunnar Örn Stephensen, Arnór Þorri Þorsteinsson, Karl Stefánsson, Steinar Eyþór Valsson, Helga Hansdóttir og
Bergþór Steinn Jónsson Íslandsmeistarar:
Í apríl var keppt á Íslandsmóti fullorðinna. Bestum árangri þar náði Ingþór Örn Valdimarsson sem vann
bronsverðlaun bæði í opnum flokki og í -90kg. Eyjólfur Guðjónsson vann einnig bronsverðlaun í sínum flokki, -66kg.
Í október tókum við þátt í fyrsta Íslandsmótinu í Jiu-jitsu. Bestum árangri þar náði
Ingþór Örn Valdimarsson sem vann silfurverðlaun bæði í opnum flokki og í -90kg.
Í desember var haldið Akueyrarmót fullorðinna í fyrsta sinn í mörg ár. Keppt var í einum flokki kvenna og sigraði Helga
Hansdóttir þar. Í karlaflokki var keppt í tveimur flokkum og sigraði Hans Rúnar Snorrason, faðir Helgu, í -80kg en Ingþór
Örn Valdimarsson sigraði í +80kg.
Þegar farið er er yfir starf deildanna sést vel hve mikið er í gangi. Þetta segir okkur auðvitað í kringum allt starfið séu
fjölmargir sem koma að starfinu með einum eða öðrum hætti. Íþróttafólkið er í eldlínunni en á bak við eru
áhugasamir foreldrar, vinir og vandamenn sem sinna störfum sem gera þetta félag svona öflugt. Þeirra starf ber að þakka og efla.
Gott dæmi um öflugan stuðning við félagið er ótrúlegur fjárstuðningur Samherja til íþróttamála á
Akureyri. Þar fékk KA 10 milljóna styrk til barna og unglingastarfs.
Íþróttum fylgja sigrar og töp, gleði og sorgir og því síðastnefnda kynntumst við í lok síðasta árs þegar fyrrum
formaður félagsins Haraldur Sigurðsson lést eftir erfið veikindi. Haraldar verður minst um ókomna tíð innan KA.
Ég hvet alla KA menn til að taka þátt í því frábæra starfi sem fer fram innan félagsins og fylgjast með því sem fram
fer í félaginu. Hægt er að nálgast upplýsingar á heimasíðu félagsins eða með því að kíkja í kaffi
í KA heimilinu. Þangað er fólk alltaf velkomið.
Að lokum óskum við KA til hamingju með 81 árs afmælið og vonum að árið 2009 verði gott KA ár.