Birna Baldursdóttir
Birna Baldursdóttir var í dag kjörinn Íþróttamaður KA 2010. Birna hefur verið einn af máttarstólpum í liði meistaraflokks KA
undanfarin ár og hefur einnig verið valin í landslið Íslands, bæði í hefðbundu blaki og strandblaki. Hún var valin leikmaður ársins
hjá Blaksambandi Íslands árið 2010. Einnig hefur þessi ótúlega íþróttakona verið í landsliði Íslands í
íshokkí undanfarin ár. Heimasíðan óskar Birnu til hamingju með titilinn!