Tekin hefur verið ákvörðun að fjarlægja athugasemdakerfi af forsíðu ka-sport.is. Það þýðir ekki að lokað hefur verið
alfarið fyrir athugasemdir á síðunni. Sem stendur eru undirsíður knattspyrnudeildar og blakdeildarinnar með opið fyrir athugasemdir og verður
það þannig áfram.
Þetta er í sjálfu sér ekki mikil breyting, athugasemdir sjást ekki undir fréttum á forsíðu www.ka-sport.is en til að taka
þátt í umræðu um fréttum síðunnar þarf bara að skoða þær á undirsíðunum, núna /
fotbolti og /
blak.
Einnig var ákveðið að það skuli ávallt skrifa athugasemdir undir nafni annars verður þeim eytt út og tekur það gildi frá og
með þessari frétt.
Þrátt fyrir þessar aðgerðir þá er ekki verið að reyna að draga úr umræðu á vefsíðunni, þvert á
móti er verið að reyna að gera hana málefnalegri og betri en hún hefur verið.
Við hvetjum fólk til að segja sína skoðun á hlutunum á málefnalegan og uppbyggjandi hátt. Slík skoðanaskipti eru nauðsynleg fyrir
KA sem félag og klúbb og verður orð hins almenna stuðningsmanns að fá að koma í ljós.
Vonandi verður þetta til þess að umræður verði betri en þær hafa verið, og bæði umræða um jákvæðar
fréttir og svo neikvæðar.