Byggingastjórinn ánægður með útkomuna

Eins og glöggir gestir KA - Heimilisins hafa tekið eftir þá hafa staðið yfir miklar framkvæmdir í félagsheimilnu undanfarnar vikur. Búið er að skipta um gólfefni og mála í samkomusalnum, á næstunni verður svo fundarherbergið tekið í gegn. Það var snillingurinn Tryggvi "Tryggur" Gunnars sem tók að sér byggingarstjórastöðuna en málarameistari var Halldór "Dóri" Aðalsteinsson.

Tíðindamaður síðunnar hitti Tryggva á dögunum og kvaðst hann afar ánægður með útkomuna en hann ásamt fylgdarsveinum hafa staðið í ströngu undanfarið. Smellið á lesa meira til að sjá myndir af byggingarmeistaranum síkáta og salnum.

Það verður að koma fram í lok fréttar að nokkrum mínótum áður en að myndinni var smellt af hafði verið dæmt mark af Everton og þeir undir í hálfleik. Þykir tíðindamanni upplitið á Tryggva ótrúlega gott miðavið það.