Dagur Árni Heimisson, einn efnilegasti leikmaður félagsins á undanförnum árum, hefur verið seldur til Vals í Reykjavík.
Um er að ræða metfjárhæð í sögu félagsins sem undirstrikar þann gífurlega áhuga sem leikmaðurinn hefur vakið.
Dagur Árni, sem hefur alist upp innan raða félagsins, hefur vakið athygli fyrir kraftmikinn leikstíl, yfirvegun og fagmennsku, þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur vaxið með hverju tímabili og nú bíða hans nýjar áskoranir. Hann fékk snemma tækifærið í meistaraflokk KA og hefur stigið framfaraskref á hverju tímabili.
„Það er auðvitað mikil eftirsjá eftir góðum dreng, bæði innan vallar og utan. En við erum jafnframt stolt af því starfi sem fram fer í yngri flokkum félagsins sem og því tækifæri sem ungum leikmönnum í KA er gefið til að láta ljós sitt skína. Ljóst er að þetta mun skapa ný tækifæri fyrir unga og efnilega leikmenn liðsins til að stíga upp og verður gaman að fylgjast með liðinu í vetur.” segir í yfirlýsingu frá stjórn. „Salan markar tímamót í sögu félagsins og er til vitnis um öflugt ungmennastarf KA. Við þökkum Degi Árna kærlega fyrir hans framlag til félagsins í bili og óskum honum velfarnaðar. Þá hlökkum við til að sjá ungt og efnilegt lið KA blómstra á næsta tímabili.“