Davíð, faðir Andra (Stefán) og Eyjólfur.Davíð Búi Halldórsson var kjörinn íþróttamaður KA í dag við hátíðlega athöfn sem haldin var í tilefni 80 ára afmælis KA. Davíð er fyrsti blakmaðurinn í sögu KA sem er kjörinn íþróttmaður ársins. Í öðru sæti var Andri Snær Stefánsson sem reyndar leikur með Akureyri Handboltafélagi, en Andri hefur unnið frábært starf innan KA við þjálfun yngriflokka og verið félaginu til sóma. Í þriðja sæti var kjörinn hinn efnilegi júdómaður Eyjólfur Guðjónsson sem hefur unnið frábæra sigra í júdó á s.l. ári.
Heimasíðan óskar Davíði, Andra og Eyjólfi til hamingju !