Hann er Englendingur sem kom til fyrst til KA sumarið 1995 og lék með liðinu í níu sumur en þess á milli lék hann erlendis og einnig með ÍA árið 1998.
Flestir KA-menn ættu að kannast við kappann en hann lék á hægri kantinum hjá KA og var oftar en ekki einn af lykilmönnum liðsins.
,,Hann þjálfaði yngri flokka hér hjá KA í nokkur ár við góðan orðstír. Við misstum mjög góðan mann þegar hann fór upp á Skaga en við erum að fá hann heim aftur," sagði Tómas Lárus Vilbergsson formaður knattspyrnudeildar í samtali við Fótbolta.net í dag.
Í sumar lék Dínó sem er 35 ára gamall einungis fimm leiki með ÍA í Landsbankadeildinni en hann hefur átt við þrálát meiðsli að stríða.v