Aðalfundur KA var haldinn á mánudaginn

Dræm mæting var á aðalfund KA sem haldinn var s.l. mánudag, en rétt tæplega 20 manns voru á fundinum. Þar voru rædd ýmis málefni er varða félagið. Kom það fram á fundinum að félagið var rekið með hagnaði árið 2008 og að allar deildir innan félagsins væru reknar með hagnaði. Var þeim sérstaklega hrósað af gjaldkera og formanni fyrir gott starf og fyrir góðan rekstur. Einnig var farið yfir árið 2008 í stuttri skýrslu sem hægt er að finna hér að neðan.

Undir liðnum önnur mál var ýmislegt rætt, t.d. um nauðsyn ferðajöfnunarsjóðs ÍSÍ fyrir félagið en nýlega voru útgjöld hans fyrir árið 2009 skorin niður úr 90 milljónum í 60 milljónir. Rætt var um að KA menn myndu veita stjórnvöldum aðahald til þess að ekki yrði skorið enn frekar niður og var ályktun þess efnis samþykkt á fundinum. Einnig var komið inn á mikilvægi þess að fara að taka aðstöðu KA manna innanhús til skoðunar en mjög brýnt er að skipta um gólf sem að er ónýtt.

Stefán Gunnlaugsson var kjörinn formaður á ný.

Fundarstjóri var Gunnar Níelsson sem þykir hafa mikla hæfileika á því sviði.

Myndir frá aðalfundinum
Skýrsla fyrir árið 2008 (Word)