Félagsgjöld KA 2026 á leiðinni - Takk fyrir að vera hluti af KA

Það er sannarlega líf og fjör í KA þessa dagana. Framkvæmdir við nýja aðstöðu ganga vel, starfsemin blómstrar og félagið heldur áfram að vaxa. Í dag eru sex deildir starfræktar innan KA – knattspyrna, handbolti, blak, fimleikar, júdó og lyftingar – og KA er eitt stærsta og öflugasta íþróttafélag landsins.

Aðalstjórn KA hefur samþykkt að félagsgjöld ársins 2026 verði óbreytt frá fyrra ári og nemi 6.500 kr. Samkvæmt lögum félagsins ber félagsmönnum að greiða félagsgjald og með greiðslu þess styður þú beint við áframhaldandi uppbyggingu og öflugt starf félagsins.

Líkt og á síðasta ári fylgir félagsgjaldinu glæsileg KA-kanna – óbrjótanleg, rétt eins og KA-fólk.

Kröfur vegna félagsgjalda verða sendar út á næstu dögum og vonumst við til að félagsmenn taki vel á móti þeim. Stuðningur ykkar skiptir miklu máli og hjálpar okkur að halda áfram að efla starfsemi félagsins fyrir iðkendur á öllum aldri.

Þeir sem greiddu félagsgjald árið 2025 þurfa ekki að skrá sig aftur, heldur fá greiðsluseðil sendan sjálfkrafa. 

Við skráningu þarf að senda nafn og kennitölu félagsmanns eða félagsmanna, ásamt kennitölu greiðanda. Skráning félagsmanna fer fram í gegnum ka@ka.is

Að sjálfsögðu er einnig alltaf heitt á könnunni í KA-heimilinu og velkomið að koma við hjá Gauta og ganga frá félagsgjaldinu yfir kaffibolla.

KA er ekki bara félag - KA er samfélag. Takk fyrir að vera hluti af því!