Hannes Pétursson, foreldri í 7. fl drengja í fótbolta, sendi síðunni fjölda mynda og litla ferðsögu um reisu 7.flokksins til Hrafnagils.
7 fl. drengja fór að Hrafnagili í laugardag og gisti eina nótt. Mætt var á staðinn kl. 17:30 og var æft frá kl. 18:00 – 21:00. Einnig voru leikir á milli strákanna og foreldra bæði pabbar og mömmur tóku þátt og var ekkert gefið eftir. Nokkrum pizzum var skolað niður með svala og áður en farið var að sofa var horft á eina mynd. Sumir vöknuðu fyrr en aðrir á sunnudagsmorgun en æfing var á milli 09:00 – 10:00. Á eftir æfingu var svo farið í sund, pottinn og gufu áður en allir héldu aftur heim á leið sælir og glaðir eftir skemmtilega ferð.
Sjáðu fleiri myndir úr ferðinni með því að smella hér.
Við þökkum Hannesi kærlega fyrir innleggið og hvetjum jafnframt fleyri til að senda inn greinar og pistla. Ef þið hafið áhuga, sendið mér línu á siggi@ka-sport.is