Sigfús... flottur í bláu
Fréttin sem rituð var um ráðningu Sigfús Helgasonar framkvæmdastjóra og formanns Þórs í stöðu framkvæmdastjóra KA,
var aprílgabb. Fréttin fékk gríðarlegar viðtökur í gær og létu fjölmargir blekkjast. Það var Óskar Þór
Halldórsson sem átti heiðurinn af fréttinni, en hugmyndin kveiknaði á fundi nokkurra KA manna um síðastliðna helgi.
Haft var samband við Sigfús, sem brást skjótt við og mætti í myndatöku. Þetta sýnir kannski hversu samstarfið er gott á milli
félaganna og aldrei að vita nema að Sigfús setjist í framkvæmdastjórastólinn í framtíðinni, enda fer blátt honum einstaklega
vel !
Sendum þeim Óskari og Sigfúsi kærar kveðjur og þökkum fyrir samstarfið. !
(1. apríl, 1. apríl!)