Það var heldur betur fjölmennt í KA-heimilinu í dag á árlegum KA-degi, sem haldinn er sem næst afmælisdegi félagsins, en það fagnar nú 83ja ára afmæli. Talið er að 200 manns hafi komið í KA-heimilið í tilefni dagsins.
Hrefna G. Torfadóttir, formaður félagsins, bauð gesti velkomna og fól Óskari Þór Halldórssyni, sem tekur við framkvæmdastjórn knattspyrnudeildar félagsins þann 1. febrúar nk., að stýra dagskránni. Óskar Þór gat þess að meðal gesta í hófinu væri Hermann Sigtryggsson, fyrrverandi formaður KA og heiðursfélagi KA, en hann fagnaði áttræðisafmæli sínu í gær. Gestir óskuðu Hermanni til hamingju með gærdaginn með dynjandi lófaklappi.
Tryggvi Gunnarsson, fráfarandi varaformaður KA, flutti annál félagsins fyrir árið 2010 og þar kom fram að árið hafi í heild sinni verið félaginu gjöfult.
Viðar Sigurjónsson, sviðsstjóri hjá ÍSÍ á Akureyri og þjálfari meistaraflokks Þórs/KA í knattspyrnu, flutti ræðu dagsins og Helga Steinunn Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður KA og núverandi ritari stjórnar Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, afhenti formanni félagsins og fulltrúum allra fjögurra delda félagsins, skjal til staðfestingar á því að útnefning KA og allra deilda þess sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ, hafi verið endurnýjuð.
Að því búnu voru íþróttamenn KA fyrir árið 2010 heiðraðir og þeim afhentir svokallaðir formannabikarar til eignar, en
þeir eru gefnir af fyrrverandi formönnum KA. Þessir fjórir íþróttamenn eru:
Birna Baldursdóttir, blakmaður KA
Kolbrún Gígja Einarsdóttir, handknattsleiksmaður KA
Helga Hansdóttir, júdómaður KA
Sandor Matus, knattspyrnumaður KA
Þá var komið að því að kunngjöra útnefningu Íþróttamanns KA 2010, en hann kjósa stjórnarmenn í
aðalstjórn KA og formenn allra deilda félagsins. Niðurstaða þeirra var að Birna Baldursdóttir væri Íþróttamaður KA fyrir
árið 2010. Birna er lykilleikmaður í KA-liðinu sen spilaði til úrslita í Bridgestonebikarnum 2010 og lék Birna stórt hlutverk í
þeim leik. Að auki var hún einn af máttarstólpunum í kvennalandsliði Íslands sem lék í undankeppni Evrópumóts
Smáþjóða. Birna á að baki um 40 landsleiki í blaki fyrir Ísland.
Birna tók þátt í öllum stigamótum sumarsins í strandblaki og varð hún stigameistari. Auk þess varð hún Íslandsmeistari
í strandblaki ásamt félaga sínum, Fríðu Sigurðardóttur.
Landsliðsþjálfarinn í strandblaki valdi Birnu í lið sitt sem fór til Kanaríeyja í október og spilaði hún þar með
Fríðu Sigurðardóttir í úrtökumóti fyrir Ólympíuleikana. Þær stöllur stóðu sig vel gegn sterkum
andstæðingum en þetta var í fyrsta sinn sem íslenskt landslið keppir í svo stórri keppni á erlendri grundu.
Birna var útnefnd blakkona ársins af Blaksambandi Íslands.
Birna Baldursdóttir er fyrirmynd margra íþróttamanna og hefur tileinkað íþróttum allan sinn frítíma. Hún hefur jafnframt
hjálpað mikið til við uppbyggingu meistaraflokksliðs KA undanfarin ár.
Að útnefningunni lokinni bauð félagið til glæsilegs kaffihlaðborðs, en ötulir félagsmenn lögðu til bakkelsi. Um kaffihlaðborðið sáu nokkrar duglegar KA-konur sem hafa unnið ófá handtökin fyrir KA í gegnum tíðina. Öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við kaffihlaðborðið og við framkvæmd KA-dagsins eru færðar innilegustu þakkir.
Þórir Tryggvason var með myndavélina á lofti. Hægt er að sjá myndirnar með því að smella hér.
Birna Baldursdóttir, blakkona, Íþróttamaður KA 2010. Birna stóð í ströngu í dag því
hún var í eldlínunni með stöllum sínum í KA-liðinu í leik á móti Þróttarstelpum frá Neskaupstað á
sama tíma og útnefningin fór fram. Hlé var gert á leiknum á meðan Birna skaust upp í hófið og tók við viðurkenningum
sínum sem blakmaður ársins hjá KA og Íþróttamaður KA 2010.
Mikið fjölmenni var á KA-deginum í dag. Lætur
nærri að um tvö hundruð manns hafi komið og tekið þátt í dagskrá dagsins.
Íþróttamennirnir fjórir sem voru heiðraðir í dag. Frá vinstri: Sandor Matus, knattspyrnumaður ársins,
Kolbrún Gígja Einarsdóttir, handknattleiksmaður ársins, Helga Hansdóttir, júdómaður ársins og Birna Baldursdóttir, blakmaður
ársins.
Helga Steinunn Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður KA og núverandi ritari stjórnar ÍSÍ, afhenti formanni KA og
fulltrúum deilda félagsins viðurkenningaspjöld því til staðfestingar að KA hafi áfram uppfyllt skilyrði um að vera útnefnt
Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
-ÓÞH