Í ár eru alls sjö afreksmenn frá öllum deildum félaglagsins tilnefndir. Við skulum kynnast þessu fólki aðeins nánar. Hver eru
þau og hvað hefur það gert til að verðskulda tilnefninguna?
Tilnefningar Knattspyrnudeildar

Matus Sandor
Sandor er einn allra besti markmaðurinn á Íslandi í dag og hafa mörg félög reynt að að fá hann til liðs við sig en Sandor heldur
tryggð við KA. Sandor hefur spilað með landsliðum Ungverjalands undir 17-19 og 21 árs. Sandor hefur spilað sem atvinnumaður í Ungverjalandi og Finnlandi en
undanfarin fimm ár hefur hann verið leikmaður KA.
Arnar Már Guðjónsson
Arnar Már gekk til liðs við KA sl vor frá ÍA. Arnar var valinn besti leikmaður KA af leikmönnum á sl keppnistímabili. Arnar Már hefur
spilað með landsliðum Íslands undir 17 ára og undir 19 ára.
Tilnefning júdódeildar
Ingþór Örn Valdimarsson
Ingþór varð í 3. sæti í opnum flokki á Íslandsmótinu. Ingþór varð í 2. sæti í opnum flokki á
fyrsta Íslandsmótinu í Jiu-jitsu.Ingþór, sem er 25 ára, hefur í vetur tekið þátt í þjálfun meistaraflokks og
sýnt þar afburðahæfileika sem þjálfari.
Tilnefningar Handknattleiksdeildar

Unnur Ómarsdóttir
Unnur er fædd 1990 Var í U-19 ára landsliði Íslands í sumar og er einn af lykilmönnum í meistara- og 3.flokki kvenna í handknattleik
Arna Valgerður Erlingsdóttir
Arna er fædd 1991 Var í U-19 ára landsliði Íslands í handknattleik á árinu og er einn af lykilmönnum í meistara-og 3.fl.kvenna
Tilnefningar blakdeildar
Piotr Slawomir Kempisty
Piotr er gríðarsterkur leikmaður sem fenginn var til KA fyrir leiktímabilið 2007-2008 og eru á sínu öðru ári hér á Íslandi
Piotr spilaði áður sem atvinnumaður í Póllandi og Tékklandi. Piotr í 2 sæti yfir stigahæsta leikmann 1. deildarinnar í fyrra en hann
var jafnframt besti uppgjafari Íslandsmótsins. Lið KA fékk silfurverðlaun í deildarkeppni BLÍ og einnig silfurverðlaun í bikarkeppni BLÍ.
Liðið varð í 3-4 sæti í Íslandsmóti BLÍ. Piotr íhugar nú að sækja um íslenskan ríkisborgararétt og
fá þannig möguleika á að spila með landsliði Íslands.
Una Margrét Heimisdóttir
Hún var valin í 3 landslið í fyrra sem er harla óvenjulegt í blakinu. Hún var í U17 landsliði Íslands sem keppti á NEVZA
mótinu (Norðurlandamótinu) í Falköping og í U19 landsliðinu sem keppti í NEVZA-mótinu á Akureyri þar sem liðið
náði bronsverðlaunum. Einnig var hún í A-landsliði Íslands sem keppti á Smáþjóðaleikunum á Möltu í
júní. Una spilaði með 2. deildar liði KA í fyrra en liðið endaði neðarlega í norðurriðli enda skipað að mestu leikmönnum
í 3. flokki.