Aðalfundur KA var haldinn fyrir skömmu þar sem farið var yfir stöðu félagsins og starfsárið 2025 gert upp. Þar kom fram að rekstur félagsins var með ágætum á liðnu ári og íþróttastarfið í miklum blóma. Hins vegar var einnig bent á að aðstaða félagsins væri orðin löngu sprungin. Þrátt fyrir að framkvæmdir séu hafnar á svæðinu hefur vöxtur félagsins verið það mikill að ljóst er að áfram þarf að huga að heildstæðu framtíðarskipulagi félagsvæðisins.
Heimasíða KA settist niður með Eiríki S. Jóhannssyni, formanni KA, til að ræða þessi mál og stöðuna í uppbyggingu.
Hvernig metur þú stöðuna í kjölfar aðalfundarins?
„Aðalfundurinn sýndi vel að félagið stendur sterkt. Reksturinn er traustur og starfið öflugt, sem við erum auðvitað stolt af. En á sama tíma er það alveg ljóst að aðstaðan sem við höfum haft heldur ekki í við vöxt félagsins. Hún er einfaldlega sprungin og hefur verið það í nokkurn tíma.“
Þrátt fyrir núverandi framkvæmdir, dugar það ekki til?
„Nei, ekki eins og þróunin hefur verið og heldur áfram. Fjölgun iðkenda á vegum KA er gríðarleg og stendur í dag í tæpum 2.000 einstaklingum. Að baki þessum aðilum eru foreldrar, fjölskyldur og aðrir stuðningsmenn sem gerir KA fjölskylduna enn fjölmennari. Það er vissulega verið að byggja upp og bæta, sem er jákvætt, en vöxturinn í félaginu er svo mikill og miklar breytingar í umgjörð knattspyrnu og handknattleiks sérstaklega, að við erum í raun alltaf skrefi á eftir. Þess vegna er svo mikilvægt að horfa ekki bara á einstaka framkvæmdir heldur heildarmyndina – framtíðarskipulag svæðisins.“
Þú skaust nokkuð föstum skotum á bæjarstjórn á aðalfundinum. Hvað lá þar að baki?
„Það sem stingur mig mest er að það virðist vera gert ráð fyrir því að KA geti að miklu leyti treyst á sjálfboðaliðavinnu við uppbyggingu og viðhald, á meðan önnur félög, fá frekar beina aðkomu og stuðning. Sjálfboðaliðar eru gríðarlega mikilvægir og KA byggir á öflugu starfi þeirra, en það má ekki verða afsökun fyrir því að opinberir aðilar mismuni félögum bæjarins.“

Þú hefur einnig fengið viðbrögð frá sjálfboðaliðum félagsins?
„Já, fjölmargir sjálfboðaliðar KA, sem einnig eru iðnaðarmenn hér í bæ, hafa komið að máli við mig og undrast það að hafa unnið ótal klukkustundir í sjálfboðavinnu fyrir KA, en síðan fengið greitt fyrir sambærileg verkefni þegar unnið er fyrir Akureyrarbæ, til dæmis við nýjan völl í Glerárhverfi. Í einhverjum tilfellum kann þetta að skýrast af misskilningi, en þegar upp er staðið er erfitt að líta fram hjá því að þarna virðist félögum hafa verið mismunað.“
Getur þú nefnt dæmi um slíkt?
„Já, dæmin eru mörg, en til dæmis var KA neitað um að setja upp vökvunarkerfi á Greifavöllinn, tilvonandi æfingavöll okkar, nema félagið bæri kostnaðinn sjálft, á meðan Akureyrarbær greiddi fyrir fullbúið vökvunarkerfi á æfingavelli í Glerárhverfi. Svona dæmi sitja í fólki. Þetta og margt annað virðist byggja á þeim misskilningi að KA sé þegar komið með fullkominn keppnisvöll og því sé ekki þörf á frekari uppbyggingu á æfingasvæðum.“
Hvað áttu við með þessu?
„Staðreyndin er sú, hvernig sem menn vilja snúa því, að þegar tekin var ákvörðun um að byggja upp aðskilin keppnissvæði í stað Akureyrarvallar var byrjað á Þórssvæðinu og keppnisvöllur byggður þar fyrst – og hann stendur enn en einhverra hluta vegna lítt notaður. Á KA-svæðinu var byrjað haustið 2008, en vegna fjármálahrunsins vorum við beðin um að bíða með uppbyggingu okkar keppnisvallar og þannig gefa bæjarfélaginu andrými til að takast á við afleiðingar hrunsins, sem við að sjálfsögðu urðum við. Þannig að þegar upp er staðið má segja að keppnisvöllur KA verði líklega nær 20 ár í byggingu þegar hann verður loks fullbúinn.“

Þrátt fyrir þessa gagnrýni, hvernig horfir þú á þátt bæjarins í uppbyggingunni?
„Við erum þakklát fyrir þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað á félagssvæðinu sem og þá sem nú er í gangi, það vil ég taka skýrt fram. Þetta er ekki sjálfsagt og þetta eru í raun fjármunir bæjarbúa sjálfra sem eru nýttir í þessi verkefni. Það er eðlilegt að þurfa að forgangsraða og dreifa fjármagni á milli verkefna og aldurshópa. En það breytir því ekki að við viljum sanngjarna og jafna meðferð.“
Nú eru kosningar fram undan og margir frambjóðendur hafa talað um að klára uppbygginguna hjá KA. Hvernig horfir það við þér?
„Það er auðvitað gott að heyra að fólk vilji leggja sitt af mörkum, en ég verð að viðurkenna að ég er orðinn þreyttur á litlum eða hægum efndum á gefnum loforðum. Það er talað um að ‘klára þetta með sóma’, en ef við horfum á stöðuna í dag þá er alls ekki mikill sómi af því hvernig málum hefur verið haldið. Það þarf minna tal og meiri framkvæmd. Margir eru þessa dagana að gefa loforð sem þeir geta ekki staðið við og aðrir tala þvert um hug sinn“
Hvað er að gerast í uppbyggingarmálum á svæðinu okkar núna?
„Félagið bíður nú svara frá bænum um viðauka, sem gerður var að beiðni bæjarins, við framkvæmdasamninginn er einmitt varðar breytingu á áætlaðri þátttöku sjálfboðaliða KA við verkið. Þá höfum við einnig lagt fram beiðni um að ráðist verði í hönnun á framtíðarskipulagi félagsvæðisins. Í þessum tveimur málum mun í raun reyna á þau orð sem við heyrum nú frá frambjóðendum um að klára eigi uppbygginguna af myndarskap. Nú þarf einfaldlega að sýna það í verki.“

Hvað viltu sjá gerast næst?
„Ég vil sjá þennan viðauka samþykktan, skýra áætlun um framtíðar möguleika á svæðinu um frekari uppbyggingu, tímasetta og fjármagnaða áætlun, sem er svo einfaldlega fylgt eftir þegar fjárhagsleg geta bæjarfélagsins býður uppá slíkt. Ekki fleiri hálfkveðnar vísur. En fyrst og fremst leggjum við áherslu á vandað skipulag, sem gert er í tíma þ.a. hámarks nýting og hagkvæmni rekstrar mannvirkjanna sé tryggt. Við viljum bara sanngjarna meðferð og að það sé staðið við það sem er sagt.“
Hvað segir þú við félagsmenn og aðra stuðningsmenn KA í ljósi þessa?
„Ég hvet alla KA menn til að fylgjast mjög vel með því sem stjórnmálamenn eru að lofa núna. Hlusta, spyrja spurninga og muna svo eftir þessu þegar kemur að kjördegi. Það skiptir máli hvernig menn kjósa, sérstaklega þegar svona stór hagsmunamál eru undir. Ég mun sjálfur fara yfir stöðuna með félagsmönnum eftir helgina og gera grein fyrir því hver niðurstaðan verður í þessum málum.“
Telur þú að þessi mál eigi að vera í forgrunni kosningabaráttunnar?
„Að mínu mati, sem útsvarsgreiðandi hér í bæ, eiga kosningar ekki fyrst og fremst að snúast um alls kyns fjárfestingaloforð út og suður. Miklu mikilvægara er að ræða hvernig eigi að reka bæjarfélagið á hagkvæman hátt. Ef reksturinn er skynsamlegur og ábyrgur, þá skapast svigrúm til uppbyggingar – og jafnframt til að lækka álögur á íbúa. Það er stóra myndin.“
Að lokum, ertu bjartsýnn á framhaldið?
„Ég er alltaf bjartsýnn fyrir hönd KA. Félagið er sterkt og baklandið öflugt. En það þarf að bæta umgjörðina og þar eiga stjórnvöld sinn þátt. Ég vona einfaldlega að næstu mánuðir sýni okkur raunverulegar framfarir, ekki bara falleg orð. Við leggjum ríka áherslu á að fólk finni sig í starfinu í KA og njóti þess að vera hluti af þessu magnaða félagi. Það er gaman í KA“