Frá aðalfundi knattspyrnudeildar

Stjórn knattspyrnudeildar 2007
Stjórn knattspyrnudeildar 2007
Aðalfundur knattspyrnudeildar KA fór fram síðastliðinn föstudag í KA-heimilinu og var m.a. kosið í nýja stjórn deildarinnar og þá var einnig kosið í stjórnir yngriflokkaráðs.Nýr formaður, Tómas Lárus Vilbergsson, var kynntur og Vignir Már Þormóðsson lét af störfum eftir sex ára formennsku. KA vill þakka Vigni fyrir frábært og óeigingjarnt starf í þágu félagsins og í leiðinni óska honum til hamingju með kosningu í stjórn KSÍ.

Stjórn Knattspyrnudeildar KA 2007:
Tómas Lársus Vilbergsson formaður
Guðmundur Gíslason
Gunnþór S Jónsson
Kristján Gestsson
Magnús Sigurólason
Varamenn eru:
Gunnar Gunnarsson
Gunnlaugur Eiðsson

Bjarni Jónsson og Ingvar Már Gíslason hættu í stjórn og færir KA þeim bestu þakkir fyrir einkar vel unnin störf fyrir félagið.