Frábær aðsókn í afmælisveislu KA

flugeldar_bonus_copy
Frábær aðsókn var á afmælisfagnað sem Knattspyrnufélag Akureyrar stóð fyrir í tilefni af 80. ára afmæli félagsins en talið er að á milli 500 - 600 manns hafi mætt. Kynnir var hinn ástsæli útvarps og KA - maður Gestur Einar Jónasson en nóg var um að vera í afmælisveislunni. Skrifað var undir samninga, afmæliskveðjur lesnar upp og margt fleira. Kjöri á íþróttamanni KA 2007 var lýst, en það var blakarinn Davíð Búi sem hlaut titilinn. Að lokum bauð Bónus KA - mönnum upp á glæsilega flugeldasýningu !

Við þökkum öllum þeim sem komu og heimsóttu okkur á afmælisdaginn og færum þakkir til þeirra fjölmörgu sem sendu skeyti og blóm.

Einnig viljum við koma á framfæri kæru þakklæti til foreldra og aðstandenda drengja og stúlkna í 4. flokki fyrir frábærar veitingar og umsjón með afmæliskaffinu.

Áfram KA !