ÍSÍ býður upp á fræðslukvöld að Glerárgötu 26 á Akureyri 19. mars kl. 17.00-21.00 um íþróttameiðsl. Stefán Ólafsson sjúkraþjálfari mun m.a. fjalla um algengustu meiðsl og orsakaþætti, samvinnu íþrótta- og sjúkraþjálfara, forvarnir meiðsla, teipingar og vafninga. Öllum opið og um leið liður í þjálfaramenntun 2. stigs ÍSÍ.
Allar nánari uppl. á vidar@isi.is eða í síma 460-1467.