Framhaldsaðalfundur KA - Gríðarlegur fjöldi sótti fundinn, mikil samstaða segja fundarmenn

Hrefna í púlti á aðalfundi félagsins fyrir tveim árum
Hrefna í púlti á aðalfundi félagsins fyrir tveim árum
Í kvöld fór fram framhaldsaðalfundur KA. Helga Steinunn Guðmundsdóttir formaður uppstillingarnefndar gerði grein fyrir störfum nefndar og í kjölfarið var lögð fram tillaga uppstillingarnefndar.  Fundarmenn samþykktu tillögu með miklu og langvinnu lófataki. Nýja stjórn skipa Hrefna G Torfadóttir formaður, aðrir í stjórn eru, Tryggvi Þór Gunnarsson, Sigurður Harðarsson, Sigríður Jóhannsdóttir, Sigurbjörn Sveinsson. Varamaður er Ragnheiður Júlíusdóttir.  Einnig eru formenn deilda í KA með sæti í aðalstjórn samkvæmt lögum félagsins.

Stjórn Jakbossjóðs var kjörinn og hana skipa þeir Jóhannes Bjarnason, Erlingur Kristjánsson og Friðjón G Jónsson.  Endurskoðandi KA var kjörinn Davíð Búi Halldórsson skoðunarmaður reikninga Jóhannes Bjarnason.

Mæting á fundinn var sú besta sem menn hafa séð í langan tíma og var fundarsalur KA heimilisins fullsetinn og mikill einhugur í fundarmönnum.

 „Þessi fundur gleymist seint þeim sem hann sóttu, huginn var svo mikill og sterkur að ég hef ekki áður fundið fyrir slíku í öll þau ár sem ég hef verið viðloðandi KA,“ var haft eftir einum fundarmanni að fundi loknum. Viðtal við nýjan formann KA, Hrefnu G. Torfadóttur birtist hér á síðunni á næstu dögum.