Framkvæmdir við pottaðstöðu ganga vel

Eins og áður hefur komið fram gengur mikið á í kjallara KA - Heimilisins en nú er verið að byggja upp glæsilega pottaaðstöðu auk þess að sett verður upp nýtt gufubað og ísbað. Undanfarna laugardagsmorgna hafa nokkrir vaskir KA menn tekið til hendinni. Tíðindamaður síðunnar mætti á svæðið og smellti nokkrum myndum af þeim. Myndirnar má sjá hér.