Fréttabréf unglingaráðs handknattleiksdeildar KA

Fréttabréf unglingaráðs handknattleiksdeildar KA er komið út. Í því er að finna allar helstu upplýsingar um starfið í vetur. Hægt er að lesa bréfið með því að smella á "Lesa meira"Kæru foreldrar/forráðamenn.
Starfið hafið
Nú er hafið nýtt æfingatímabil hjá handknattleiksdeild KA. Æfingar hófust í byrjun september hjá flestum, en í ágúst hjá þeim eldri, og er áhugi iðkenda mikill sem fyrr. Jóhann G. Jóhannsson er eins og í fyrra yfirþjálfari og er best að snúa sér til hans eða einhvers úr Unglingaráði ef spurningar vakna varðandi starfið.
Verið er að endurgera heimsíðu Handknattleiksdeildar en einhverjar upplýsingar fást þó ennþá þar. Netfangið er: http://www.ka-sport.is/hand/

Fundir - Foreldrastarf
Fundir með þjálfurum og forráðamönnum iðkenda hvers flokks verða, eða hafa verið haldnir í öllum flokkum í haust þar sem rætt verður um starfið framundan.

Unglingaráð hefur samið við SBA um akstur í keppnisferðum í vetur og vegna hagstæðra samninga verður verðið áfram 5.000 kr.pr.mann í hverri ferð.

Innheimta æfingagjalda
Innheimta æfingagjalda verður með sama sniði og síðastliðin ár og viljum við nota tækifærið til að þakka forráðamönnum iðkenda fyrir góð skil. Við munum því enn á ný hafa sérstaka æfingagjaldadaga þar sem greiðendum æfingagjalda verður boðið að ganga frá greiðslu, annaðhvort með peningum eða að skipta greiðslum á greiðslukort. Einnig er hægt að fylla út blað sem sent er til greiðsluþjónustu bankanna.
Athugið að við höfum ekki aðstöðu til að taka við debet kortum og biðjum við því fólk sem ætlar að greiða með peningum að vera búið að taka út á kortið áður en komið er í KA-heimilið.
Eftirtalda daga verða fulltrúar frá unglingaráði staddir í KA-heimilinu til að taka á móti greiðslum og/eða ganga frá kortasamningum.
Miðvikudagur17. októberfrá 17.00 – 18.30
Fimmtudagur18. októberfrá 17.00 – 18.30
Laugardagur20. októberfrá 10.00 – 12.00
Einnig er hægt leggja gjaldið inn á reikning 0162-05-63299, kennitala er 450902-2680. Munið að setja kennitölu iðkanda sem skýringu og senda kvittun í tölvupósti á sigga@framtal.com

Æfingagjöld verða sem hér segir:
7.-8. flokkur(1.-4.bekkur)kr 16.000
6. flokkur (5.-6.bekkur)kr 22.000
5. flokkur (7.-8.bekkur)kr 26.000
4. flokkur (9.-10.bekkur)kr 26.000
3. flokkurkr 26.000
Æfingagjöldum fylgja KA-stuttbuxur frá Hummel sem ætlaðar eru til æfinga og keppni.

Systkinaafsláttur
Greitt er fullt verð fyrir elsta barn, fyrir það næsta er greitt hálft gjald og ekki er greitt fyrir þriðja barn og fleiri.

Unglingaráð:
Í unglingaráði sitja nú eftirfarandi:
Sigfús Karlsson, formaður.
Sigríður Jóhannsdóttir, gjaldkeri.
Erlingur Kristjánsson, ritari.
Hannes Pétursson, meðstjórnandi.
Sigurður Tryggvason, meðstjórnandi

Þjálfarar
Haddur StefánssonUngl.fl kkhaddur@internet.isGSM: 662-0009
Stefán Árnason4. fl kkstefanarna@gmail.comGSM: 868-7504
Stefán Guðnason4.fl kvkstebbigje@simnet.isGSM: 868-2396
Siguróli Magni Sigurðsson5.fl kk25sms@ma.isGSM: 692-6646
Lilja Þórisdóttir5.fl kvk25lst@ma.isGSM: 866-8705
Jóhanna Tryggvadóttir5.fl kvk24jkt@ma.isGSM: 847-9824
Ásbjörn Friðriksson6. fl kk24afr@ma.isGSM: 865-3955
Stefán Guðnason6.fl kvkstebbigje@simnet.isGSM: 868-2396
Jóhann G. Jóhannsson7.-8.fl.kk.broi@vma.isGSM: 863-2675
Berglind Ingvadóttir7.-8.fl.kvkvma124741@vma.isGSM: 869-2114

Mót og keppnisferðir vetrarins:
Allir flokkar Unglingaráðs Handknattleiksdeildar KA taka þátt í Íslandsmóti í handknattleik í vetur nema 7.-8. flokkar karla og kvenna. Helstu breytingar frá fyrri árum eru þær að í 5. og 6. flokkum eru nú fjögur mót sem telja til Íslandsmeistara, voru áður þrjú. Ekki liggur fyrir hvort tekið verður þátt í öllum fjórum mótum vetrarins en það fer allt eftir árangri og vilja foreldra. Í 4.flokki karla og kvenna er keppt með deildarfyrirkomulagi þar sem þessir flokkar munu keppa um milli 20-25 leiki í vetur og keppt verður heima og heiman og suðurferðir munu verða 5-6 í vetur. Það sama á við um unglingaflokk karla ( 3. flokk ). Nú þegar hafa farið fram undankeppnir í þessum flokkum þar sem hefur verið raðað niður í deildir. Allar upplýsingar um mótamál eru að finna á heimasíðu HSÍ, http://www.hsi.is undir liðnum mótamál og yngri flokkar og á heimasíðu KA http://www.ka-sport.is/hand/. Svo að sjálfsögðu veita þjálfarar, yfirþjálfari og unglingaráð allar upplýsingar vakni einhverjar upplýsingar.

Bestu kveðjur, Unglingaráð Handknattleiksdeildar KA