Vetrarstarf yngriflokka KA er komið af stað og hvetjum við að sjálfsögðu alla hressa krakka til að kíkja á æfingar hjá deildum KA. Það er að sjálfsögðu frítt að koma og prófa og tökum við vel á móti ykkur.
Á sama tíma minnum við á frístundarrútu KA og SBA-Norðurleiðar en frístundarrútan er ætluð börnum á aldrinum 6 til 10 ára sem æfa fimleika, fótbolta eða handbolta með KA. Það er engin skráning í rútuna en KA er með starfsmann í rútunni sem passar uppá farþega og að þeir fari út og inn í rútuna á réttum stöðum. Hinsvegar er það á ábyrgð foreldra að láta frístund vita að barn ætli að nýta sér frístundaraksturinn hjá KA, hvaða daga og hvenær. Helstu upplýsingar um rútuna og ferðir hennar má nálgast með því að smella hér:
Þá eru vetrartöflurnar hjá öllum greinum KA komnar inn á heimasíðuna en hægt er að nálgast þær með því að smella á yngriflokkar undir hverri deild fyrir sig.
Hlökkum til að sjá ykkur!