Nóg að gera á KA svæðinu

Með hækkandi sól færist meira líf á KA svæðið sem legið hefur í dvala síðan í haust. Tíðindamaður síðunnar brá sér út í dag, spjallaði við starfsfólk KA heimilins og fylgdist með framkvæmdum sem að í gangi eru á vellinum.

Nú er verið að fylla upp í sárið sem gert var í haust þegar framkvæmdir hófust við glæsilegan aðalvöll KA sem átti að rísa á svæðinu. Sú framkvæmd, eins og allir vita, var stoppuð nokkrum dögum seinna og sjáum við KA menn því miður ekki fram á það að hægt verði að leika heimaleiki okkar í m.fl. á KA svæðinu allavegana á næsta leyti. Elli og Jón, húsverðir í KA heimilinu, sögðust vonast til þess að sjá þökur komnar á fyrir helgi en nokkuð seinagangur hefur verið í framkvæmdunum á svæðinu. Þeir vonast svo til að hægt verði að leika á vellinum á N1 mótinu sem hefst þann 1. júlí n.k. Allt þarf að ganga upp svo að það geti orðið og þurfa þeir að hlúa vel að grasinu og verður það t.d. bara slegið með handslátturvélum. Það má því búast við að sjá starfsmenn vallarins stormandi með vélar um völlin á næstu dögum.

Annars kemur svæðið ekkert sérstaklega vel undan vetri. Víða eru ljótir kalblettir sérstaklega á Nývangi. Þar eru einnig ljót sár eftir gönguskíðabraut sem lögð var á völlinn í vetur.

Í sumar munum við hér á síðunni fylgjast með lífinu á vellinum, bæði meðal starfsmanna, iðkenda og aðstandenda.

Hér að neðan eru nokkrar myndir frá deginum í dag:



Elli og Jón tóku sér smá pásu frá verkum sínum til að stilla sér upp.


Lauga og Bjarney húsverðir sjá um allt innanhús yfir sumarið.


Að fylla upp í sárið á aðalvelli KA.


Við vinnu á aðalvellinum...


Starfsmenn Garðtækni sem sér um vinnu á vellinum.


Séð yfir Nývang...