Fundur með deildum félagsins

Fundur á vegum aðalstjórnar með öllum deildum félagsins var haldinn í kvöld í KA Heimilinu. Á fundinn mættu fulltrúar frá hverri deild og kynntu þeir það sem starf hverrar deildar. Erlingur Kristjánsson kom frá handknattleiksdeild og Sigfús Karlsson frá unglingaráði handknattleiksdeildar. Gunnar Gunnarsson kynnti knattspyrnudeild og Unnur Sigurðardóttir kynnti unglingaráðið þeirra. Einnig komu á fundinn aðilar sem hafa unnið að félagakerfi fyrir unglingaráðið sem mun auðvelda þeim mjög vinnu við innheimtu æfingagjalda. Sigurður Arnar kynnti blakdeild félagsins en hinsvegar kom enginn fulltrúi frá júdódeild félagsins. Stefán Jóhannson var kallaður óvænt upp í pontu og kynnti fyrir viðstöddum stuttlega starf Akureyri-Handboltafélags. Eftir fundinn sköpuðust skemmtilegar umræður um ýmsa hluti.

Fundurinn var ágætlega sóttur og var Tryggvi Gunnarsson, einn af þeim sem að stóð að þessum fundi, sáttur með mætinguna. Er þetta mikilvægur liður í því að deildirnar tali meira saman og félagið starfi betur sem ein heild.

Smelltu hér til að sjá myndir frá fundinum.


Hluti þeirra sem mættu á fundinn í kvöld.