Fundur um uppbyggingu á KA - svæðinu

Fundur um fyrirhugaða uppbyggingu á KA-Svæðinu var boðaður á mánudagskvöldið. Heldur fátt var á fundinum, aðeins á bilinu 20 – 25 manns.

*Tryggvi Gunnarsson varaformaður félagsins fór yfir þær tillögur sem fyrirtæki Kollgáta hafði útbúið fyrir fundinn og var Logi Einarsson hjá Kollgátu jafnframt á staðnum og svaraði spurningum. Fundurinn var frekar opinn og óformlegur og ræddu menn sín á milli um hvað þeim fannst best og hvað þeir vildu gera. Það mátti greina það að tillögur 1 og 2 væru vinsælastar, sérstaklega tillaga 2. Logi vildi meina að það væri tillaga sem væri vert að skoða því með að byggja stúkuna eins og sést hér á myndinni að neðan fengi K.A. mun stærra og nytsamlegra mannvirki.

Stóra grasmálið var einnig rætt, en skiptar skoðanir eru á því hvort að keppnisgras eigi að vera eða ekta gras. Þó er það vitað mál að ef að völlurinn á að nýtast eitthvað að viti þarf að vera keppnisgras á vellinum hvort sem mönnum líkar það betur eða verr.

Á næstu vikum og mánuðum verður unnið að þessum málum en það er Arkitekta og verkfræðistofa Hauks Haraldssonar sem mun annast verkið.


*Hér eru tillögurnar sem Logi hjá Kollgátu vann fyrir K.A.

Tillaga 1, stúka byggð við Þingvallastræti og mun þá völlur og stúka snúa A-V.


Tillaga 2, stúka verði samtengd íþróttahúsi. Völlur og stúka snúi því í N-S.