Nánast daglega heyrum við eða lesum í fjölmiðlum fréttir af samningamálum erlendra knattspyrnumanna. Fjöldi íslenskra leikmanna sem fara í atvinnumennsku til annarra landa hefur einnig vaxið gríðarlega að undanförnu samfara því að öll starfsemi knattspyrnudeilda íþróttafélaga landsins hefur breyst. Nokkur íslensk félög eru nú rekinn eins og fyrirtæki sem hafa þurfa bókhaldið sitt á hreinu. Í erindi sínu á Lögfræðitorgi fjallar Ásgeir Örn Jóhannsson um reglugerð KSÍ um samninga og stöðu félaga og leikmanna og hvaðan KSÍ sækir umboð sitt til þess að setja reglur á þessu sviði. Einnig ræðir hann um leikmannasamninga, bæði innlenda og erlenda og skoðar hvernig atvinnumannasamningur úr ensku úrvalsdeildinni lítur út.
Fyrirlesturinn verður þriðjudaginn 6. mars kl. 12.00 í stofu L201 Sólborg v/Norðurslóð . Við hvetjum alla þá sem áhuga hafa á málefninu að mæta.
Ásgeir Örn Jóhannsson lauk BA próf í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri vorið 2006.