KA barst eftirfarandi kveðja í afmælisvikunni.
Með þakklátum huga óska ég mínu góða og gamla félagi til hamingju með 80 ára afmælið. Úr minningana sjóði dreg ég fram skýra mynd þar sem Hermann Stefánsson er að æfa okkur KA stelpur í handbolta hress og glaður að vanda. Þegar litið er um öxl til ljúfustu daga liðinnar ævi þá eru það stundir í vinahópi sem veita okkur mesta gleði.
Bestu framtíðaróskir frá Hólmfríði Guðlaugu Jónsdóttur (Nöbbu)
Með kveðju barst vegleg peningagjöf og þökkum við Nöbbu kærlega fyrir.