Góð stemming á KA - deginum, 82. ára afmælinu fagnað.

Hluti afmælisgesta í dag.
Hluti afmælisgesta í dag.
Í dag var 82. ára afmæli KA fagnað á hinum svokallaða KA degi, en hefð er að skapast fyrir að halda hann helgina í kringum afmælisdag KA 8. janúar. Um og yfir 100 manns lögðu leið sína í KA - heimilið, hlustuðu á ræður og gæddu sér á glæsilegum veitingum. Auk þess að lýsa kjöri á íþróttamanni KA, Piotr Slawomir, var farið yfir árið 2009 hjá KA af Tryggva Gunnarssyni, fallinna félaga minnst af Hrefnu Torfadóttur og síðan sló ræðumaður dagsins Sr. Svavar Alfreð sóknarprestur í Akureyrarkirkju í gegn sem ræðumaður dagsins.

Eftir dagskrána var boðið upp á afmæliskaffi. Dagurinn tókst gríðarlega vel og var þetta góð byrjun á góðu ári hjá KA.

Myndir sem Þórir Tryggva tók í dag er hægt að sjá með því að smella hér.

Áfram KA!