31.10.2011
Gunnar Jónsson, sem hefur verið framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags Akureyrar á annan áratug, hefur sagt starfi sínu lausu.
Gunnar hefur reynst ötull liðsmaður og er félaginu mikil eftirsjá að honum.
Aðalstjórn KA flytur honum miklar þakkir fyrir óeigingjarnt starf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Aðalstjórn KA