Um síðustu helgi voru haldnar árlegar hæfileikabúðir Blaksambands Íslands á Akureyri. Sjötíu krakkar komu í búðirnar að þessu sinni sem er fjölmennasti hópur sem tekið hefur þátt í búðunum þessi fimm skipti sem búðirnar hafa verið haldnar frá árinu 2003. Sigurður Arnar Ólafsson og Marek Bernat stjórnuðu búðunum en þeir eru báðir þjálfarar hjá Blakdeild KA en Marek þjálfar jafnframt unglingalandslið pilta undir 17 ára og undir 19 ára. Þjálfarar þeim til aðstoðar voru Hilmar Sigurjónsson og Viðar Gylfason. Fjöldi fólks kom að umsjón búðanna enda var rekið mötuneyti alla dagana fyrir þennan stóra og myndarlega hóp. Krakkarnir fóru í fjölda prófa og mælinga sem mældi líkamlegt atgerfi og tækni. Á grundvelli niðurstaða þeirra og fleiri þátta verða síðan valdir 18-24 einstaklingar í pilta og stúlknaflokki í forvalsbúðir U17 unglingalandsliðanna en þær búðir fara fram í byrjun júní. Þar verða síðan valdir þeir 12 einstaklingar í hvorum flokki sem fara á Norðurlandamót í haust. Það er mat þjálfara búanna að hópurinn sem var í búðunum að þessu sinni hafi verið óvenjulega tæknilega sterkur miðað við aldur og það er því að sjá sem framtíð unglingalandsliðanna í blaki sé björt.
F.h. ULN BLÍ Sigurður Arnar Ólafsson