Nú styttist í handboltavertíðina og eins og undanfarin ár er æfingamótið Opna Norðlenska lokapunktur í undirbúningi Akureyrarliðsins. Að þessu sinni taka fjögur lið þátt í mótinu, Fram, ÍR og 1. deildarliði Hamranna auk heimamanna.
Norðlenska mótið hefst á föstudaginn.
Leikmannakynning
Við byrjum þó fimmtudaginn 4. september með kynningu á leikmannahópi Akureyrar liðsins. Þar munu þjálfarar liðsins, þeir Heimir Örn Árnason og Sverre Andreas Jakobsson kynna sína menn til leiks.
Leikmannakynningin verður í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 20:00.
En aftur að Opna Norðlenska mótinu
Það verður virkilega forvitnilegt að sjá hvernig nýir leikmenn Akureyrar spjara sig en eins og við höfum kynnt hér á síðunni þá komu fimm nýir leikmenn til liðs við okkur auk nýliða úr 2. flokki.
Gestaliðin eru ekki síður forvitnileg. Nýr þjálfari ÍR er okkur að góðu kunnur en það er enginn annar en Bjarni Fritzson en honum til aðstoðar er stórskyttan Einar Hólmgeirsson.
Bjarni Fritzson er kominn í ÍR búninginn á nýjan leik
Þá þekkjum við vel til þjálfara Fram liðsins en það er enginn annar en Guðlaugur Arnarson, fyrrum leikmaður Akureyrar. En Gulli náði flottum árangri með Fram liðið í fyrra.
Guðlaugur ætlar sér stóra hluti með Fram liðið í vetur
Þriðja gestaliðið eru Hamrarnir sem settu skemmtilegan svip á 1. deildina síðasta vetur og ætla sér að vera með í baráttunni í vetur.
Alltaf fjör í kringum Hamrana
Fyrirkomulag mótsins er þannig að allir leika við alla þannig að í boði verða sex hörkuleikir. Hægt verður að kaupa aðgöngumiða að upphæð 1.000 krónur fyrir fullorðna og gildir miðinn á alla leikina.
Leikjaniðurröðunin er sem hér segir:
Föstudagurinn 5. september
Kl. 18:00 Akureyri - Hamrarnir
Kl. 19:30 Fram ÍR
Laugadagurinn 6. september
Kl. 10:00 Hamrarnir - ÍR
Kl. 11:30 Akureyri - Fram
Kl. 13:30 Fram - Hamrarnir
Kl. 15:00 Akureyri ÍR
Í mótslok verða veitt verðlaun fyrir sigurliðið og til viðbótar verða fern einstaklingsverðlaun, besti leikmaður mótsins, besti markvörðurinn, besti sóknarmaðurinn og besti varnarmaðurinn.