Helgarfrí hjá KA

Eftir tilkynningu frá heilbrigðisráðherra í morgun um takmarkanir á samkomum vegna Covid-19 vírussins (samkomubanns) hefur Knattspyrnufélag Akureyrar tekið þá ákvörðun að fresta öllum æfingum um helgina og mun endurmeta stöðuna á mánudaginn 16. mars.

KA mun fara eftir tilmælum stjórnvalda á meðan samkomubannið er í gildi.

Kapp er best með forsjá, áfram KA!

Við bendum á upplýsingar á vef Landlæknis og Covid.is vegna veirunnar. 

https://www.landlaeknir.is/koronaveira/

https://www.covid.is/