Laugardaginn 21. apríl verður Herrakvöld KA haldið á Hótel KEA. Merkið því rækilega við þá dagsetningu. Veislustjóri verður hinn gamalkunni bakvörður Friðfinnur Hermannsson. Ræðumaður kvöldsins verður hinn góðkunni frétta- og Mýramaður Gísli Einarsson. Þá má búast við ýmsum uppákomum svo sem: Skriðjöklinum Ragga Sót, Árna Hemm Hemm, Svani Valgeirs og Torfa Rafni Halldórs.
Nánar síðar!
Nefndin